|
Þessari síðu hefur verið lokað! GARÐHEIMAR HAFA OPNAÐ NÝJA HEIMASÍÐU, gardheimar.is |
|
Frá og með miðvikudeginum 24.nóvember lengir Spíran bistro opnunartímann til kl. 20:30, alla daga til jóla! Í boði verður smörrebröd, heitar súpur ofl. Sama dag hefst jólaopnun Garðheima, sem þýðir að opið er til kl. 22:00 öll kvöld vikunnar.
Minnum á fyrirlestur og sýnikennslu Garðyrkjufélagsins miðvikudaginn 24.nóvember og fimmtudaginn 25.nóvember kl. 19-21. Ásdís V. Pálsdóttir og Bertha Karlsdóttir blómaskreytar fjalla um aðventu- og jólaskreytingar. Engin skráning - aðgangur ókeypis - bara mæta snemma til að tryggja sér góð sæti! Nánar á síðu Garðyrkjufélagsins. |
|

Fjölskyldudagur verður í Garðheimum laugardaginn 20.nóvember kl. 13-16. Eitthvað fyrir alla fjölskyldumeðlimi. Fyrir börnin á Spírunni 2.hæð: jólakortagerð og teiknimyndasamkeppni um fallegustu jólamyndina. Garðheimar senda kortið frítt ef börnin vilja! Kl. 14:30 verður upplestur úr barnabók „Maximús músikús trítlar í tónlistarskólann“ eftir Hallfríði Ólafsdóttur, höfundur les úr bókinni og „músin“ dansar við lagið sitt. Í gróðurskálanum verður kennsla í hvernig á að vefja grenikrans, sem hægt er svo að vinna úr hurðakrans eða aðventukrans eftir því sem hver vill. Í ljósadeildinni verður ráðgjöf um val á réttu jólaseríunni. Í blómabúðinni verður sýnikennsla og hugmyndir um gerð aðventuskreytinga
Nýbakaðar Sörur, barnaís og súkkulaðikaka á hagstæðu verði á boðstólum í Spírunni. Einnig fullt af góðum tilboðum sem tengjast árstímanum. Allir velkomnir!
|
|

Garðheimar státa af meira úrvali af seríum en nokkru sinni fyrr. Nýjungarnar í ár liggja í díóðu (led) seríum. Díóðan endist margfalt lengur en aðrar perur og lækkar rafmagnsreikninginn um amk 70%. Einnig eru þær samtengjanlegar sem henta sérlega vel fyrir húsfélög og stærri hús. Í fyrsta sinn eru nú fáanlegar samtengjanlegar, stórar perur í díóðuseríum (Star Led). þær tengjast beint í 220 v, fást marglitar og glærar og eru samtengjanlegar upp í 500 perur saman. Smellð á "Nánar" fyrir meiri upplýsingar og myndasyrpu |
|
Nánar...
|
|
Leiðbeiningar um gerð jólakorta.
Efniviður: Inni á heimilum okkar leynist ýmislegt smádót sem hægt er að nýta í jólakortagerð, t.d. gamla límmiða, ljósmyndir, útklipptar myndir úr blöðum og smáhluti af ýmsu tagi. Sumir nota blaðsíður úr gömlum, ónýtum bókum, þær má t.d. nálgast í Kolaportinu. Smellið á "Nánar" fyrir framhald |
|
Nánar...
|
|

Nýkomin sending af fallegum rauðum og hvítum jólabegoníum. Einnig stórglæsilegar og tignarlegar hvítar orkideur. Auk þess ástareldur, jólastjörnur og fleira skemmtilegt til að lífga upp á heimilið í skammdeginu! |
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 23 |