cool mp3 She Wolf nice ipod Ratatouille get One Love mp3 USA The Hurt Locker hot nice Black Eyed Peas mp3 download video Fight Club awesome The Fixer music awesome DIVX 2012 Doomsday get Beatles song cheap avi Moon

Uppskeran úr garðinum Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Ertu að vandræðast með grænmetið úr garðinum?  Með því að fylgja nokkrum einföldum "Guggu-ráðum" geturðu haft grænmeti úr garðinum þínum aðgengilegt í frysti í allan vetur.

Geymsla á grænmeti:

Frystikistan er eitt besta og stærsta hjálpartækið til að geyma grænmeti.  Pakkningar fyrir ávexti og grænmeti og allt sem í frystirinn á að fara skipta mjög miklu máli.   Ekki er mælt með að setja ferskt grænmeti beint í frystirinn, þó er það misjafnt eftir tegundum grænmetis  Aðferðinni sem verður lýst hér á eftir kallast að "sjóða upp á" grænmeti.  Það borgar sig að kaupa þartilgerða frystipoka sem eru þykkir og góðir.   Venjulegir þunnir plastpokar reynast oft ekki vel, grænmetið þornar og verður litlaust og bragðlaust.

Aðferð:
Grænmetið er sett í sjóðandi vatn, þá dettur suðan niður um stund, látið koma að suðu aftur, án þess þó að sjóði.  Látið grænmetið liggja í heitu vatninu í örfáar mínútur (gulrætur, brokkolí, blómkál, rósakál 2-3 mín, grænkál 5 mín).  Takið þá grænmetið upp úr og skolið með köldu vatni, eða látið liggja í klakavatni um stund.  Látið vatnið leka vel af grænmetinu áður en sett í frystipoka.  Þegar neyta á grænmetisins síðar er það ekki afþýtt, heldur sett frosið beint út á heita pönnu eða í pott.

Hvers vegna erum við að sjóða upp á grænmeti?
Við þennan einfalda verknað drepum við bakteríur og ensím, og þannig helst betur bragð, litur og vítamín. 

Einstakar tegundir:

Sveppir:  Sveppirnir eru hreinsaðir og skornir í grófa bita.  Léttsteiktir í smjöri.  Sett í litla frystipoka.  Sveppina má einnig létthita á pönnu með smjöri og víni/sítrónu/rjóma.  Gott að setja beint út í sósu eða rétti.  Geymast í 4-5 mánuði, en ef notað er mikið smjör eða rjómi þá geymast þeir skemur í frystinum.

Rauðkál:   Skorið smátt niður,  sett í pott með smjöri, sykri og edik.  Soðið á lágum hita með lokið á í 50-60 mínútur.  Tilbúið til notkunar með mat.  Gott er að setja epli í litlum bitum (2-3 epli á móti 1 rauðkálshöfuði).  Geymist í frysti í 6-7 mánuði.

Hvítkál:  Höfuðið er skorið í 4 hluta, soðið upp á kálinu í 3-4 mínútur eftir áðurnefndri aðferð og fryst.   Þegar á að nota kálið er það skorið niður í bita frosið.  Gott að nota í kjötsúpur,  kjötbollur með kálbögglum osfrv.

Gúrkur:  Sneiddar niður í þunnar sneiðar, fryst í litlum skömmtum (til að hver skammtur passi beint til notkunar).  Settar frosnar út í lög (edik og sykur hrært saman, ekki soðið).  Geymist í kæli í nokkra daga í lokaðri krukku.

Rauðrófur í krukkum:  Þvegnar vel, soðnar heilar í léttsöltu vatni (eins og kartöflur).  Þegar þær eru soðnar eru þær afhýddar og kældar.  Sneiddar niður og sett í hreinar krukkur.  Safinn útbúinn og settur út í krukkurnar.  Uppskrift að safa:  á móti 2 kg af litlum rauðrófum, notið 7 ½ dl edik (borðedik 7%) og 500 g. sykur.  Lögurinn er soðinn saman, látið sjóða stutta stund, sykurinn þarf að bráðna.  Hellt yfir rauðrófurnar í krukkunum.

Ekki er hægt að sjóða upp á einstaka grænmetis-tegundum, t.d. spínati og sveppum, það þarf aðra meðhöndlun.

02.09.08

 

Góð ráð Garðheima

Haustlaufin nýtast vel til að bæta jarðveginn og skýla viðkvæmum gróðri. Gott er að blanda þeim aðeins saman við moldina og setja yfir lauka og upp að viðkvæmum plöntum.