cool mp3 She Wolf nice ipod Ratatouille get One Love mp3 USA The Hurt Locker hot nice Black Eyed Peas mp3 download video Fight Club awesome The Fixer music awesome DIVX 2012 Doomsday get Beatles song cheap avi Moon

Leit

Nóvemberkaktus Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Nóvemberkaktus er auðveldur og þakklátur stöngulkaktus, sem blómstrar í 1-2 mánuði.  Nóvemberkaktus blómstrar ár eftir ár og verður oft stór og mjög fallegur, alþakinn bleikum eða hvítum blómum. Hann nýtur sín vel á borði, í glugga og sérstaklega vel á blómasúlu nálægt glugga. 

 

Yfir blómgunartímann þarf að vera jafn raki en þó má hann aðeins þorna á milli vökvana, hann má alls ekki ofþorna.  Þetta er þó allt háð hitastigi innandyra.  Áburðargjöf er hálfsmánaðarlega.  Þegar hann er kominn í blóm má ekki snúa honum í gluggakistunni því þá detta knúparnir af.

Eftir blómgun þarf að hvíla plöntuna.  Það er gert með því að minnka verulega vökvun.  Liðirnir mega þó alls ekki skorpna.  Á vorin þarf að skipta um mold á honum og auka vökvunina. Hann vex mikið á sumrin og eftir vaxtartímabilið er vökvunin minnkuð aftur þar til blómknúppar fara að sjást.

Birta:  Svolítil sólarglæta sakar ekki, en vægur skuggi er æskilegri.

Hiti:  Meðalhiti nótt (10-16°C) svalt og þurrt frá september og þartil blómhnappar sjást.