Leit
| Gerðu þinn eigin krans ! |
|
|
|
Nú er um að gera að kíkja í geymslurnar og kanna hvað er til frá í fyrra, taka grenið af gamla kransinum - ef basthringurinn var plastaður ætti hann að vera í góðu standi til að nota áfram. Finna svo til slaufur og kúlur og annað skraut sem nýta má áfram. Hugmyndir að krönsum má finna í verslun Garðheima, og þar seljum við allt sem þarf til kransagerðar, s.s. vír, oasis fix, mosa, kertahaldara, skæri og tangir, borða, kúlur ofl. Smellið á "Nánar" fyrir leiðbeiningar: Hurðarkrans og aðventukrans:Efni og áhöld: Basthringur, plastfóður, klippur, bindivír, rómarnálar, 3 tegundir af greni. Magn af greni: 20 cm krans tekur 1 búnt af greni, 25 cm krans tekur 2 búnt, 30 cm tekur 3 búnt, 40 cm tekur 4-5 búnt, eftir því hvaða þéttleika er óskað. Aðferð: Byrjað er á því að klippa niður efnið í hæfilega lengd. Basthringur er fóðraður með plastfóðri og bindivírinn festur. Gott er að búa til litla vendi sem lagðir eru á upphafspunkt, lagðir þétt saman á hringinn og vírnum vafið utanum og þannig koll af kolli. Nauðsynlegt er að vefja frekar þétt þar sem efnið þornar með tímanum og passa upp á að hylja vírinn vel. Þegar komið er á endapunkt er gerð lykkja með vírnum, snúið upp á hann og að lokum klippt á hann og endanum stungið í basthringinn. Aðventukrans: Hægt er að skreyta kransinn með fallegum kertahöldurum, kertum, kramarhúsum, batterísseríum, borðum, snúrum, könglum, kúlum eða hvað sem hugmyndaflugið býður upp á ☺ Könglar og kúlur eru fest með vír, einnig er hægt að nota límbyssu með heitu lími. Hurðarkrans: Utandyra heldur kransinn ferskleika sínum býsna lengi og er til mikillar prýði á útihurðinni. Kransinn er skreyttur með kúlum, könglum, gervigreinum og slaufum sem þola að vera úti. Vír hentar best til að festa skraut á útikransa. Kertaskreyting: Efni og áhöld: Pottur, oasis, rómarnálar, mosi, kertahaldarar, 1-2 tegundir af greni, könglar, skrautgrein, kúlur og slaufa. Aðferð: Byrjað er á því að sníða oasis kubb passlegan í pottinn. Ef potturinn er víður þarf að líma oasis kubbinn niður eða nota oasis stól. Næst er oasis kubburinn hulinn með mosa, hann má festa niður með rómannálum. Kertahöldunum er þvínæst komið fyrir í miðjunni og greni raðað þar í kring. Skrautgreinar settar inn á milli, einnig könglar og kúlur. Endað á fallegri slaufu sem fest er með vír. Flest skreytingarefni sem keypt er tilbúið er með vír og tilbúið til notkunar, annað efni þarf að víra sjálfur. Þá er bara að virkja hugmyndaflugið og byrja að skapa! Ávinningurinn er gleði, ánægja og tengsl við náttúruna og ekki þarf mikinn tilkostnað við ☺ Gangi ykkur vel! PRENTVÆN ÚTGÁFA AF LEIÐBEININGUM
|


