Leit
| Fjölskyldudagur 20.nóv |
|
|
|
Fjölskyldudagur verður í Garðheimum laugardaginn 20.nóvember kl. 13-16. Eitthvað fyrir alla fjölskyldumeðlimi. Fyrir börnin á Spírunni 2.hæð: jólakortagerð og teiknimyndasamkeppni um fallegustu jólamyndina. Garðheimar senda kortið frítt ef börnin vilja! Kl. 14:30 verður upplestur úr barnabók „Maximús músikús trítlar í tónlistarskólann“ eftir Hallfríði Ólafsdóttur, höfundur les úr bókinni og „músin“ dansar við lagið sitt. Í gróðurskálanum verður kennsla í hvernig á að vefja grenikrans, sem hægt er svo að vinna úr hurðakrans eða aðventukrans eftir því sem hver vill. Í ljósadeildinni verður ráðgjöf um val á réttu jólaseríunni. Í blómabúðinni verður sýnikennsla og hugmyndir um gerð aðventuskreytinga
|


