|
Dýradagar um síðustu helgi tókst vel og lögðu margir leið sína í Garðheima til að skoða krúttlega smáhunda. Hundafimin vakti mikla lukku og komust færri að en vildu. Hundatískusýningin er alltaf jafn skemmtileg og tóku hundarnir sig sérlega vel út í tískufatnaðinum í ár!
Vinningshafar í lukkuleiknum fengu gjafakörfur með hundavörum. Nöfn þeirra eru: Sigurjón með Pílu 8 ára, Margrét Áslaug með Kát 2 1/2 árs, Elísa með Coco 4ra ára, Ásdís Rún með Lúkas 2ja ára, Drífa Katrín með Þrumu 5 ára. Við óskum vinningshöfum til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt. Smellið á "Nánar" fyrir myndasyrpu: |
|
Nánar...
|
|

Föstudaginn 29.október kl. 17:00 fer fram dómasýning Spítzhundadeildar HRFÍ. Valdir verða bestu hundar í hverjum flokki, sem eru m.a. besti hvolpurinn, hundurinn, tíkin, öldungurinn osfrv. Fyrsti hringur er áætlaður um kl. 17:30, sýningunni lýkur svo um kl. 20:30. Allir velkomnir - sýningin fer fram í gróðurhúsinu í Garðheimum. |
|
Smáhundafjör verður í Garðheimum um helgina, laugardag og sunnudag kl. 12-17. Sýndar verða yfir 25 tegundir af smáhundum, á vegum HRFÍ. Dýravörukynningar, frábær tilboð, lukkupottur ofl.
Hundatískusýning verður laugardag og sunnudag kl. 14:30. Hundafimi verður sýnd í gróðurhúsinu laugardag kl. 15:00. Þeir hundar sem eru á staðnum fá að prófa hundafimi. |
|

Nú eru komnar inn myndir af sýningunni, smellið á Nánar hér fyrir neðan: Á dýradögum Garðheima helgina 20.-21.mars kynnti HRFÍ margar tegundir af stórhundum ! Margir lögðu leið sína í Garðheima til að skoða þessa glæsilegu hunda. Hundafimi fór fram í gróðurhúsinu og Vinnuhundadeildin mætti á svæðið. Heimsóknarhundar Rauða Krossins vöktu lukku. Dregið hefur verið í lukkupottinum og hlutu eftirfarandi aðilar veglega dýragjafakörfu í vinning - smellið á "Nánar" |
|
Nánar...
|
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 5 |