Ráðgjöf & Námskeið
Leit
| Námskeið haust 2010 |
|
|
|
Skráningar sendist á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í s: 5403300. Vinsamlegast tilgreinið nafn, gsm númer og netfang. Námskeiðin hefjast öll kl. 17:30 á Spírunni, 2.hæð Garðheimum Stekkjarbakka. Spíran bistro verður með opið í tengslum við námskeiðin og býður upp á girnileg tilboð til þátttakenda. ATH AUKANÁMSKEIÐ Í AÐVENTUKRANSAGERÐ 17.NÓV! Smellið á "Nánar" hér til hægri, fyrir upplýsingar um hvert námskeið fyrir sig:
25.ágúst: Öðruvísi sultur og pestóLeiðbeinandi: Hinrik Carl Ellertsson kokkur á Spírunni. Um er að ræða sýnikennslu í sultun á berjum, ávöxtum, lauk ofl. Hefurðu prófað melónusultu? lauksultu? Farið verður yfir hvernig mismunandi sykurtegundir hafa áhrif í sultugerðinni. Leiðbeiningar um hvernig má gera gómsætt pestó á auðveldan hátt úr ýmsum kryddjurtum, salati ofl.
7.september: Sveppatínsla og matseldLeiðbeinendur: Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur og Hinrik Carl Ellertsson kokkur á Spírunni. Vilmundur fer yfir helstu tegundir matsveppa sem óhætt er að týna og Hinrik fer svo í geymsluaðferðir og gefur nokkrar ljúffengar og góðar uppskriftir !
9.september: Uppskeran - geymsluaðferðirLeiðbeinandi: Guðbjörg Kristjánsdóttir (Gugga). Farið er í geymsluaðferðir á grænmeti og kryddjurtum, hvernig soðið er upp á grænmeti, hvað má frysta ósoðið ofl. Súrsun, sultun, geymsla á berjum. Nokkrar góðar uppskriftir fylgja með.
15.september: Nýtt í prjónaskap - Rússneskt heklAukanámskeið 14.sept kl. 17:30. Fullbókað er 15.sept. Leiðbeinendur: Patrick Hassel-Zein og Ragnheiður Eiríksdóttir frá Knitting Iceland. Í hefðbundnu hekli er haldið á nálinni eins og hún væri penni, en í rússnesku hekli heldurðu á nálinni ofanfrá, eins og þegar þú prjónar. Patrick kennir undirstöðuatriðin, hægt er að kaupa rússnesku heklunálina og bókina á staðnum. Hægt verður að sitja áfram eftir námskeiðið og æfa sig.
16.september: Haustverkin í garðinumLeiðbeinendur Steinunn Reynisdóttir / Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingar. Farið er yfir gróðursetningu haustlauka og haustplantna. Flutningur á plöntum uppbindingar og skýlingar á fjölærum plöntum. Trjáklippingar og frætínsla. Hvernig hlúum við að matjurtagarðinum eftir sumarið, til að undirbúa jarðveginn fyrir næsta sumar.
23.september: Haustkransagerð og kertaskreytingarLeiðbeinendur: blómaskreytar úr blómadeild Garðheima. Lærðu að nýta útigróðurinn í bland við haustplöntur og greinar. Sýnt hvernig má vefja kransa á auðveldan hátt og gera skreytingar í kringum kerti.
14.október: "Skrapp" fyrir byrjendur (ný dagsetning!)Leiðbeinendur: blómaskreytar úr blómadeild Garðheima / Sissa. Hentar fyrir þá sem hafa áhuga á því að gera meira úr myndunum sínum og vilja eiga persónuleg albúm. Þetta er góður upphafspunktur fyrir þá sem vilja skrappa en vita ekki hvar þeir eiga að byrja. Kennd verða grunnatriði og hugmyndir að fallegu skrappi – sýnt hvernig gera má myndaalbúm, gestabækur og minningarbækur.
21.október: Nýtt í skartgripagerð - Fimo leir (ný dagsetning!)Leiðbeinendur: blómaskreytar úr blómadeild Garðheima / Sissa. Farið verður í grunnatriði og meðhöndllun á Fimo leir, sem nota má t.d. í hringa, hálsmen ofl. Allir þátttakendur fá leirbút til að prófa að vinna með. Einnig farið í aðrar nýjungar í skartgripagerð.
13.október: Frágangur á prjóniLeiðbeinandi: Hulda Hákonardóttir frá Ístex. Margir eru í erfiðleikum með frágang á prjónaflíkum. Farið verður í hvernig á að lykkja saman undir höndum, frágang á listum framaná peysum ofl. Fólk má koma með flíkur með sér og fá leiðsögn með frágang.
10.nóvember: Öðruvísi sokkaprjón - AFLÝSTLeiðbeinendur: Ágústa Jóns / Benný Ósk sem gáfu út vettlingabókina Hlýjar Hendur og eru nú að gefa út bókina Hlýir fætur. Kynntar verða nokkrar gerðir af einföldum sokkum sem er auðvelt og fljótlegt að prjóna, og krefst ekki mikillar tæknilegrar prjónakunnáttu. Í bókinni Hlýjir fætur eru nokkrar uppskriftir af slíkum sokkum og fólki verður hjálpað af stað. NÁMSKEIÐIÐ FELLUR NIÐUR.
11.nóvember: JólakortagerðLeiðbeinendur: blómaskreytar úr blómadeild Garðheima/ Ásta og Sissa. Sýnt hvernig gera má falleg og öðruvísi jólakort.
Aðventukransagerð: 17.nóvember (aukanámskeið)16.nóvember (fullbókað):Leiðbeinendur: blómaskreytar Garðheima. Farið verður í nýtt og hefðbundið í aðventukrönsum. Lærðu að nýta efni sem þú átt í bland við nýtt og ferskt efni. Hugmyndir að nýtískulegum og hefðbundnum krönsum.
18.nóvember: Persónulegar jólakúlurLeiðbeinendur: blómaskreytar úr blómadeild Garðheima / Sissa. Lærðu að setja mynd af t.d. börnum inn í glærar kúlur og skreyta í kring. Tilvalin jólagjöf til ömmu og afa... smá mynd af sýnishorni
|




