|
Laukur vikunnar er Keisarakróna, Lutea - gulblómstrandi og Rubra Maxima - rauðblómstrandi). Hár og glæsilegur laukur, verður allt að 1 m á hæð og blómstrar í maí/júní. Plantað á 15 cm dýpt. Vill frekar þurran vaxtarstað. Fallegt er að blanda saman í beð með t.d. lægri túlípönum eða páskaliljum.
Laukurinn er einnig kallaður "músafælulaukurinn". Þá er hann klipptur niður í bita og dreift um húsnæðið - vinsælt í sumarbústaðinn ! Tilboðsverð: áður 960,- nú 768,- (15.okt.2010) |
|
Laukur vikunnar er hýasintha til að hafa úti, sem kallast "Marie". Blómsturtími er maí/júní og verður hún 20-25 cm há.
Gott er að gróðursetja á 15-20 cm dýpi. Verð áður 410,- tilboðsverð nú 328,- 5 stk í pk. |
|
Haustlaukalistinn 2010 er kominn út. Aldrei meira úrval. Krókusar, túlípanar, liljur, fjölærir laukar, páskaliljur og jólalaukar. Setja má laukana niður núna strax og frameftir vetri, meðan jörð er frostfrí.
Nú erum að gera að kíkja á listann, skoða og spekúlera, láta sig dreyma um fallegt, blómstrandi vor! Smellið hér til að opna pdf skjal: HAUSTLAUKALISTINN 2010 |
|
Matlaukur er flokkaður í Blaðlauk annars vegar, þar sem eingöngur eru nýttir stönglar og blöð. Hins vegar í Hnýðislauk, sem er aðallega nýttur vegna lauks neðanjarðar, en stundum blöðin einnig. Þeir eiga sameiginlegt að vilja frjóan og áburðarríkan jarðveg, vel ræstan, á sólríkum stað. Smellið á "Nánar" fyrir framhald: |
|
Nánar...
|
|
|
Rósakál er fræ mars mánaðar. Þessi káltegund ekki á sér mjög langa sögu hér á Íslandi. Kálið er frekar seinvaxið sem gæti verið skýring á hvers vegna fáir velja það til ræktunar.
Til að ná nauðsynlegum vaxtartíma þarf að sá fyrr fyrir rósakáli en öðrum káltegundum. Tíminn frá miðjum mars til apríl byrjunar er kjörinn tími. Smellið á "Nánar" fyrir framhaldið |
|
Nánar...
|
|
Nú er rétti tíminn til að byrja að sá fyrir nokkrum tegundum kryddjurta og sumarblóma.
Helstu kryddjurtir sem gott er að sá fyrir snemma eru Rósmarín og Steinselja. Einnig má fara að sá fyrir salati til að hafa inni. Í sumarblómunum er gott að byrja að sá fyrir Stjúpum, Ljónsmunna, Bellis (Fagurfífill), Sólbrá, Brúðarstjörnu, Kínadrottningu, Meyjarblóma, Brúðarauga, Apablómi, Pelargoníu (Mánabrúður), Sumarhatti, Silfurkambi og Járnjurt. |
|
 Sáning sumarblóma er eitt af vorverkunum. Reikna má með 4-8 vikum þar til hægt er að planta út á vaxtarstað. Þó eru til nokkrar harðgerar, fljótvaxnar tegundir, sem hægt er að sá beint út á vaxtarstað í maí, ef aðstæður leyfa. Aftan á fræpökkunum eru upplýsingar ef meðhöndla þarf fræið sérstaklega. Ef sáð er í bakka eða potta er handhægast að nota til þess gerða sáðmold, þar sem hún hefur rétta samsetningu og á að vera laus við sjúkdóma og meindýr. Smellið á "Nánar" fyrir framhald. |
|
Nánar...
|
|
Frælistinn 2010 skiptist niður í nokkra flokka. Smellið á viðeigandi skjal og fáið upp pdf skjal.
Kryddjurtalistinn 2010 Matjurtalistinn 2010 Trjáfrælistinn 2010 Sumarblómalistinn 2010 (uppfært 1.feb.2010) |
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 2 |