|
Amaryllis er alltaf skemmtileg jólaplanta. Þessi tignarlega inniplanta er svo falleg á borði inni í stofu eða hvar sem er í húsinu. Blómin eru stór og mikil, ýmist rauð bleik eða hvít.
Laukarnir eru settir í mold u.þ.b. um miðjan október til þess að fá blómgun eftir miðjan desember og fram yfir jól. Athuga skal að setja moldina aðeins upp að helming lauksins. Einnig er hægt að setja þá í sérstök amaryllisglös, mjó í miðjunni en breið að ofan, þannig að rótin er sett í ‘fótinn á glasinu’ og hann fylltur með vatni til hálfs að rótunum. Athuga skal að vatnið nái ekki alveg að lauknum, þannig getur hann fúnað.
|