Garðurinn
Leit
| Jólastjarnan |
|
|
|
Jólastjarnan Euphorbia pulcherrima er löngu orðin stjarna jólanna. Hún er sígild og fer alltaf vel á borði eða í gluggakistu. Hún er fallega rauð eða hvít með dökkgrænum blöðum. Ýmsir bleikir litir hafa verið reyndir í gegnum árin og í ár eru tveir nýir bleikir litir; dökkbleikur og föl- svolítið út í laxableikur. Mjög fallegir, báðir á aðventunni. Smellið á "Nánar" fyrir meiri upplýsingar
Það eru háblöðin sem eru svo áberandi og falleg á litinn í skammdeginu. Sjálf blómin eru pínulítil og gul í toppnum, efst á milli háblaðanna. Gott er að skoða litlu, gulu blómin til að áætla hvað stjarnan mun standa lengi. Ef þau eru óútsprungin á hún mánuði eftir en ef þau eru útsprungin gæti hún enst í einn til tvo mánuði en ekki mikið lengur. A.m.k. ekki við venjulegan stofuhita. Það fer alltaf eftir hitastiginu hversu vel rauðu (lituðu) háblöðin standa. Best standa þau á frekar svölum stað, um eða undir 16°C. Þannig geta þau staðið í marga mánuði. Vökvið jólastjörnuna oft og lítið í einu. Hún má alls ekki þorna og alls ekki standa í vatni. Notið ekki ískalt vatn og hún hefur gott af að standa á rökum vikri eða smásteinum svo að rakt loft leiki um hana. Ef kalt er úti þegar jólastjarna er keypt er nauðsynlegt að verja hana á leiðinni heim. Þá er betra að fá hana innpakkaða í bréf heldur en í sellófan. Látið hana heldur ekki bíða úti í bíl á meðan farið er í lengri innkaupaferðir, farið beint heim með hana, þar sem hún fær jafnan hita. Kjörhiti fyrir jólastjörnu meðan hún er í blóma (litlu, gulu blómin) er 16-21°C. Þeim sem vilja freista þess að halda lífi í jólastjörnunni áfram eftir jólin skal bent á að hún þarf svalan stað eftir blómgun, 12-16°C og góða birtu. Draga á þá verulega úr vökvuninni þangað til í apríl. Þá er henni umpottað, vöxturinn lagaður ef þarf og vökvun aukin. Ef hún á að blómstra aftur þarf að gera sérstakar ráðstafanir. Eftir vaxtartímabilið, í lok ágúst, þarf að stytta daginn niður fyrir 10 klst. T.d. má setja yfir hana svartan poka frá kl. 18:00 til kl. 07:00 dag hvern. Þá undirbýr hún blómgun og eftir nokkrar vikur fer að sjást litur í háblöðunum.
|


