|
Planta febrúarmánaðar er Ecneveria / Kransakollur.
Kransakollur er þykkblöðungur af kaktusaætt. Plantan hefur þykkar blaðhvirfingar sem eru blágrænar á lit. Einstaklega fallega lögun hennar minnir á rósettu. Þannig gleður hún alltaf augað hvort sem hún blómstrar eður ei. Flestir kransakollar eru blómviljugir ef hægt er að láta þá standa á svölum stað á veturna. Blómin eru rauðgul og setja mikinn svip á blaðhvirfinguna. Smellið á "Nánar" fyrir framhald |
|
Nánar...
|
|
|
Hedera Vöxtur: Bergflétta vex hratt, en ný skot verður að fjarlægja, svo hún þéttist. Hún blómstrar ekki. Birta: Þarf mikla birtu, en blöðin fölna í sterku sólskini. Hitastig: Þolir miklar sveiflur. Ætti ekki að vera í minna en 7°C inni á veturna. Hitinn ætti ekki að fra yfir 15°c Vökvun: Vökvið bergfléttu ekki um of. Nóg að vökva 1-2 í viku á sumrin, eftir veðri og 1 sinni eða sjaldnar á veturna. Áburður: Notið fljótandi áburð hálfsmánaðarlega á sumrin. Vaxtarskilyrði: Úðið plöntuna 1-2 í viku eða látið pottinn standa á rökum smásteinum. Til hreinsunar ætti úðunin að nægja. Bergflétta þolir ekki ryk á blöðunum. Nota má blómabón en aðeins annan hvern mánuð. |
|
Schefflera Hún er fyrirmyndar stofublóm sem þolir bæði lélega lýsingu og heldur lítinn hita, en þrífst þó best með góðri umirðu og við góð skilyrði. Vegna blaðhvirfingar efur hún fengið heitið regnhlífartré. Hún tilheyrir Áralíuætt, en dregur heiti sitt af grasafræðingnum J.C. Scheffler. Birta: Vill bjartan stað, en þó ekki í sól á sumrin. Hún getur aðlagast skilyrðum í nokkuð dimmu horni stofunnar. Vöxtur: Vaxa um 30-35 á sumri. Hitastig: Miðlungshiti 12-18 C . að vetrinum. En á sumin 21C. Vökvun: Þarf töluverðan raka og vökvun 2-3 sinnum í viku á sumrin og 1 sinni í viku á veturna. Áburður: Notið hálfan skammt af áburði í vatnið hálfsmánaðarlega á sumrin. Vaxtarskilyrði: Úðun 2-3 í viku gerir henni mjög gott. Ef úðunin nægir ekki má hreinsa blöðin með rökum klút. Nota má blómabón, en í mesta lagi annan hvern mánuð. Mjög harðgerð planta sem þolir að standa í súg. Góð loftræksing er henni nauðsynleg. Umpotta skal ekki oftar en annað hvert ár ungum plöntum, betra er að skipta um efsta moldarlagið í pottinum. Á stórum plöntum má gera það árlega. |
|
|
|
|
|
|