cool mp3 She Wolf nice ipod Ratatouille get One Love mp3 USA The Hurt Locker hot nice Black Eyed Peas mp3 download video Fight Club awesome The Fixer music awesome DIVX 2012 Doomsday get Beatles song cheap avi Moon

Góð ráð Garðheima: grænmeti Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Góð ráð um ræktun grænmetis og annarra matjurta:


•     Nokkrum grænmetistegundum er yfirleitt sáð beint út í garð, s.s. gulrótum, radísum og pastinakka, og þá snemma sumars,  í byrjun maí.
•    Sumum grænmetistegundum má sá beint út í garð, t.d. ýmiss rófum, næpum, vorlauk og ýmiss konar salati.  En einnig má forrækta þær til að flýta fyrir uppskeru.  
•    Sniðugt er að forsá salati til að flýta fyrir fyrstu uppskeru, og sá einnig beint út, 2-3 sinnum yfir sumarið, til að hafa uppskeru allt sumarið.
•    Þegar sáð er beint út í garð er gott er að búa til örlitlar rákir í moldina, sá fræjunum ofan í og setja þunnt moldarlag yfir.  Athugið þó að ef fræ eru smá er ekki mælt með að þekja þau með mold.
•    Sniðugt getur verið að sá gulrótum og radísum til skiptis í rákir, radísurnar koma fyrr upp og skýla gulrótunum.  Þannig sparast líka pláss þar sem uppskeran af radísum er fyrr, fá gulræturnar meira pláss.
•    Gott ráð um klettasalat (rucola) sem farið er að blómstra er að klippa ofan af plöntunni og skilja eftir 2-3 cm stilka, þá vex plantan aftur upp.  
•    Við vökvun er gott að nota úðadreifara að kvöldi eða í byrjun dags.