|
Hvenær er best að setja niður lauka? Frá september til desember, helst í frostfría jörð. Örlítið frost er í lagi svo lengi sem hægt er að vinna jarðveginn. Hvaða aðferð er best við gróðursetningu? Margvíslegar aðferðir eru notaðar. Ein þeirra er að gera reglulegar holur með gróðurstaf eða skóflu. Til að fá “náttúrulegra” yfirbragð má dreifa laukunum yfir jarðveginn og setja svo moldarlag yfir. Hversu djúpt/langt á milli lauka?
Smellið á "nánar" fyrir framhald.
Þumalputtareglan er að setja laukinn þrisvar sinnum stærð sína á dýpt, og setja 10 cm moldarlag yfir. Gott er að hafa 12 cm á milli stærri lauka, 10 cm á milli minni lauka. Ef ætlunin er að hafa þétta þyrpingu blóma, má planta þeim aðeins þéttar. Jarðvegurinn: Áður en gróðursetning hefst, er gott að stinga jarðveginn aðeins upp, passa að hann sé laus í sér. Gróðursetja má í allar gerðir jarðvegs svo lengi sem hann drenar vel. Ef um er að ræða þéttan moldarjarðveg er mælt með að blanda sandi eða safnhaugamold saman við efst lagið. Ef plantað er í potta og ker, má nota mold úr garðinum eða pottamold. Eftir útplöntun þarf að vökva. Þegar frostar er gott að setja gott lag af laufblöðum yfir beðið til að verja laukana. Mörg ánægjuleg ár: Eftir að laukar hafa blómstrað, má oft nota þá áfram næstu árin. Með því að planta þeim í bland við nýja lauka má auka fjölbreytnina í garðinum. Skilja má laukana eftir í jörðinni eftir að laufblöðin og blómin hafa visnað. Þar sem laukar sjá um að taka til sín næringu, er mjög líklegt að þeir blómstri aftur að ári. Mælt er með áburðargjöf fyrir fjölæra lauka, t.d. Blákorni Ef notaður er lífrænn áburður er gott að gefa hann að hausti.
Skipuleggðu garðinn þinn! Áður en hafist er handa við gróðursetningu er gott að hafa áætlun til að vinna eftir. Það er mjög einfalt, sér í lagi ef tekið er tillit til mismunandi blómstrunartíma og hæð blómanna. Þannig getur vorgarðurinn þinn verið í blóma frá mars (vetrargosi) fram í júlí (bretaíris). Svo má planta vorlaukum að vori, sem blómstra frá miðju sumri fram í október. Þannig geturðu notið samfellu blómstrandi lauka frá febrúar fram í október. Bestur árangur næst með því að planta nokkrum laukum saman í þyrpingar, t.d. 10-15 túlípönum, 7-10 páskaliljum eða 25-50 krókusum. Blanda má saman laukum af mismunandi hæð, t.d. planta Anemoniu blöndu í fremri hluta beðsins og háum túlípönum á bakvið. Blómlaukar í pottum og kerjum: Ekki er nauðsynlegt að hafa stóran garð til að geta notið fallegra blómlauka. Laukar passa vel í potta og ker og lífga upp á verandir og svalir. Þá fer oft vel að velja saman nokkrar mismunandi tegundir lágra blómlauka og blanda þeim saman. Blómlaukum má planta í nánast allar gerðir potta og kerja, svo lengi sem dren er í lagi. Varla þarf að taka fram að ílátin þurfa að vera nokkuð djúp. Planta má laukunum þéttar í pottum en í beðum. Til varnar frosti má breiða t.d. dagblöð yfir pottana. Einnig er mælt með að færa pottana á köld og þurr svæði. Passið að vatn safnist ekki fyrir í pottunum.
Góð ráð: • Hvernig væri að breyta til og planta laukunum í ker eða potta? • Til að ná fallegri áferð má planta saman laukum sem eru misháir. • Með því að blanda saman laukum sem blómstra á mismunandi tímum, færðu fallegan blómagarð í langan tíma þar sem ný tegund tekur við er önnur hættir. Einnig má ná fallegum samsetningum með fjölærum laukum. • Margar tegundir lauka henta vel í grjótlendi. • Blómlaukar í grasi skapa fallega, náttúrulega ímynd. PDF SKJAL TIL ÚTPRENTUNAR MEÐ SAMA TEXTA HAUSTLAUKALISTINN 2010
|